Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

  1. 5 days ago

    126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir

    Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.  Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.  ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum!  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir
  2. 15 Jul ·  Bonus

    Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

    Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur.  Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka. Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46)

Ratings & Reviews

4.8
out of 5
46 Ratings

About

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

You Might Also Like