Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

  1. 23 hr ago

    Event Horizon (1997)

    Event Horizon (1997)Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa vinsældir þessarar sci-fi hryllingsmyndar stórlega aukist. Margir vilja jafnvel meina að hún sé besta/skásta myndin frá Paul W.S. Anderson. Þetta veltur reyndar á því hvað viðkomandi finnst um Mortal Kombat myndina hans frá 1995. Allavega, á meðal dyggra aðdáenda Event Horizon eru (fasta)gestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal. Þeir eru saman sestir niður með Atla (og síðar meir Tomma) til að dásama þessa fullkomlega ófullkomnu og pönkuðu ræmu þar sem meistarar eins og Sam Neill heitinn og Laurence Fishburne leika listir sínar af bestu lyst. Myndin hefur líka merkilega sögu að baki í tengslum við skammarlegan mæli af glötuðu myndefni. Sökum þess að filmunegatífurnar glötuðust mun Anderson aldrei geta gefið út upprunalegu sýn sinni á Event Horizon. En meira um það í spjallinu, þannig að... Upp með blöðin, brjótið þau saman og hlerið súmmeringu bíófíklana. Athugið að skoðanir verða verulega skiptar! Efnisyfirlit: 00:00 - Hverjir og hvers vegna? 03:52 - Költ-risið 06:06 - "Mjög mikið Alien" 13:13 - Ónýtt efni 20:13 - Lúkk og djammlag 26:48 - "Fullkomna millibilið" 36:36 - Tími og tölvuleikjamyndir 47:28 - (Tommi sestur) 'Heitt teik'? 57:37 - Anderson sarpurinn

    Event Horizon (1997)
  2. 30 Oct

    The Batman (2022)

    “Gleðilega fokking Hrekkjavöku,” mælir einn önugi lögreglustjórinn við Myrka riddarann okkar.Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd. Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína. Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu. Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i stúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu. Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör! Efnisyfirlit: 00:00 - Slasher-Batman! 17:29 - Pattinson og Bruce 27:21 - Ráðgátan og spillarnir 36:24 - Hasar og ofbeldi 48:44 - "Útskriftarverk" 56:21 - Hvað veit Riddler? 01:08:41 - Hvað framundan er...

    The Batman (2022)
  3. 23 Oct

    Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd

    Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla? Og af hverju Kevin?! Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim. Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör! Þú vilt heyra þetta sprell. Efnisyfirlit: 00:00 - Tóm krús og Digger 06:33 - Hvort er betra kombó? 09:59 - Þrjár samnefndar... 14:21 - Kruger eða Klippikrumla 17:41 - Framúrskarandi og tímalaus 20:15 - Af hverju Kevin? 24:45 - Hótelpælingar 27:17 - Trúðaleg umræða 29:45 - Gervigreindarmörk 35:55 - Bregðusenuhopp 49:20 - Yfirnáttúruleg reynsla

    Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd

About

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

You Might Also Like