Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

  1. 23h ago

    Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni

    Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.

    Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
  2. 2d ago

    Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar

    Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.

    Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar

About

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

You Might Also Like