Gagnarök

Digido

Konfektmolar í veröld markaðsmála í boði Digido. Hér er fjallað milli allt milli himins og jarðar er snýr að markaðsmálum. Komdu með okkur í ferðalag um fjölbreytta undraveröld sem breytist hratt.

  1. 04/16/2024

    OpenAI kynnir Sora - Texti verður að myndbandi

    Í þessum þætti af Gagnarök fjalla Ómar, Arnar og Alicja um nýjasta útspilið frá OpenAI. Alicja Lei er sérfræðingur í skilaboðum og efnisgerð hjá Digido ásamt því að vera einn mesti reynslubolti landsins í B2B sölu- og markaðsmálum. Alicja kemur frá Bandaríkjunum og er þátturinn að þessu sinni á ensku - í fyrsta sinn!  Flest þekkjum við ChatGPT og notum jafnvel daglega til að svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Mörg okkar nota einnig DALL-E 2 sem getur breytt texta í myndir.  Saman hefur þessi virkni hjálpað markaðsfólki með fjölmarga hluti, svo sem hugmyndavinnu, textasmíði, laga texta, rannsóknarvinnu, búa til myndefni ofl. Nú í febrúar kynnti OpenAi nýjungina - SORA - og er tilgangurinn með þessari nýju virkni að gera notendum kleift að breyta texta í myndband - markaðsfólki til mikillar ánægju.  Í þættinum köfum við ofan í: Hvað er Sora?Hvernig er það öðruvísi en ChatGPT og Dall-E 2?Hvernig mun Sora virka?Hvernig verður hægt að nota Sora?Hvað ber framtíðin í skauti sér? UM HLAÐVARPIÐ Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar. Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins. Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér: https://www.linkedin.com/company/digidomarketing https://www.instagram.com/digidomarketing https://www.facebook.com/digidomarketing

    47 min

Ratings & Reviews

5
out of 5
3 Ratings

About

Konfektmolar í veröld markaðsmála í boði Digido. Hér er fjallað milli allt milli himins og jarðar er snýr að markaðsmálum. Komdu með okkur í ferðalag um fjölbreytta undraveröld sem breytist hratt.