4. vaktin

Hlaðvarpið 4 vaktin

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

  1. 28 May

    84. Spjall við systkini fatlaðra barna - Hera og Vala

    Í þessum þætti fengum við til okkar Heru Arnardóttur og Völu Fanneyju Farestveit. Þær eru báðar á menntaskólaárunum, Hera að kveðja þau og útskrifaðist í vor og Vala að ljúka fyrsta ári.  Þær komu til okkar í þáttinn til að ræða það einstaka hlutverk sem þær eru báðar deila en þær eru systur fatlaðra barna.  Í þættinum fáum við að hlusta á einlæga lýsingu þeirra af því hlutverki og hvernig það er að eiga fatlað systkini. Þær báðar hafa góða innsýn inn í hvað er eins og hvað er frábrugðið þar sem þær eiga fleiri systkini. Það sem einkennir þáttinn einna helst er hvað þær hafa góða sýn á lífið og hvernig sú reynsla að kynnast veruleika fatlaðs fólks hefur haft mótandi áhrif á þær.  Sjón er sögu ríkari eða eyru eru sögu betur lýsandi og leggjum við því til að skella sér beint í hlustun á þessum skemmtilega þætti. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    1hr 1min
  2. 27 May

    83. Börn með fötlun á Íslandi. Þáttur á pólsku - Dzieci z niepełnosprawnością na Islandii.

    Þessi þáttur er á pólsku Draumurinn okkar í hlaðvarpinu 4.vaktin er að gera upplýsingar aðgengilegar fyrir sem fjölbreyttasta hópinn.  Að geta boðið upp á fræðslu á fleiri tungumálum en Íslensku er einn liður í þeim draumi. Það hefðum við aldrei getað gert nema með Kötu og Kasiu sem að sáu um nánast allt! Eina sem við gerðum var að segja þeim okkar hugmynd og hvað myndum helst vilja að kæmi fram. Þúsund þakkir til ykkar. Katarzyna Kubis (kölluð Kasia) er tveggja barna móðir, þar á meðal móðir 14 ára gamalls fatlaðs drengs. Hún er þroskaþjálfi að mennt og vinnur sem verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna hjá Þroskahjálp, ásamt því að leiða aukalega stuðningshópana fyrir pólska foreldra fatlaðra og einhverfa barna sem búa á Íslandi. Katarzyna Þóra Matysek (kölluð Kata) er 3 barna móðir, heldur úti 2 hlaðvörp á pólsku, ÍSAT kennari og brúarsmiður Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.  Spis najważniejszych instytucji i pojęć poruszonych w odcinku:   Island.is/fötluð börn Główny portal rządowy z informacjami o usługach, dostępny również w języku polskim (poprzez wbudowany tłumacz). https://island.is/lifsvidburdir/fotlud-born Tryggingastofnun (TR) – Zakład Ubezpieczeń Społecznych Odpowiada za zasiłek opiekuńczy (Umönnunargreiðslur), który jest nieopodatkowany i przyznawany na podstawie orzeczenia o niepełnosprawności. Strona: https://www.tr.is/ Sjúkratryggingar Íslands – Islandzkie Ubezpieczenia Zdrowotne Zajmują się dofinansowaniem sprzętu (wózki, tablety komunikacyjne, itp.), leków oraz środków higienicznych (np. pampersów). Strona: https://www.sjukra.is/ Gminne Centra Usług Społecznych (Þjónustumiðstöð) Pierwszy punkt kontaktu. Tu wnioskuje się o: Akstursþjónusta – transport do szkoły. Liðveisla / Einstaklingsstuðningur – asystent osobisty. Stuðningsfjölskylda – opieka wytchnieniowa (rodzina wspierająca). Félagsráðgjafi/ráðgjafi – Doradca socjalny Należy zgłosić się do centrum usług społecznych w swoim miejscu zamieszkania  Umhyggja – Stowarzyszenie dzieci przewlekle chorych i niepełnosprawnych Oferuje kursy dla rodzeństwa, terapię zajęciową, pomoc prawną, wynajem domków letniskowych oraz darmowe smycze ze słonecznikami (Sólblómabandið) dla osób z niewidzialną/ukrytą niepełnosprawnością. Strona: https://www.umhyggja.is/ Ráðgjafar- og greiningarstöð  Państwowy ośrodek doradczo-diagnostyczny zajmujący się diagnozowaniem dzieci i szeroko zakrojonym doradztwem. Strona: https://www.greining.is/ 7. Inne stowarzyszenia i kluby sportowe: https://www.einstokborn.is/ https://glofelag.is/ https://www.gerpla.is/deildir/parkour/ https://ifsport.is/ https://fjordursport.is/ Wsparcie Społecznościowe (Facebook) Grupa: „Autyzm, ADHD i niepełnosprawność na Islandii” – kluczowe miejsce wymiany doświadczeń dla polskich rodziców. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00. Þau eru með mikið af lausnum í boði. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    49 min
  3. 19 May

    82. Þroskahjálp - Landssamtök

    Til okkar komu Guðmundur Ármann Pétursson formaður og  Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri frá Þroskahjálp. Þroskahjálp vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hagsmunagæslu fatlaðs fólks.  Við hvetjum alla þá sem hafa tök á að styðja við starf Þroskahjálpar með eingreiðslu, mánaðarlegu framlagi eða versla vefverslun throskahjalp.is Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið árið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með það að markmiði að tryggja því fullt jafnrétti á við aðra. Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlað fólk. Félögin eru starfrækt um allt land og eru félagsmenn þeirra u.þ.b. sex þúsund. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility verslun er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00. Hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm - hreinlætisvörur Eru með nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    1hr 39min
  4. 3 May

    81. Hjálpartæki sem bæta lífsgæði, hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og alla sem þurfa

    Við fengum til okkar 2 aðila til að segja okkur frá ýmislegu tengdu hjálpartækjum fyrir þá sem þurfa vegna fötlunar, veikinda, verkja eða öðru.  Þeir fræða okkur um úrvalið, þróunina, möguleikana og hvað þarf að hafa í huga. Þeir koma með sitthvort sjónarhornið en Bergur kemur inn sem notandi og Sigurður sem faðir stúlku sem er notandi.  Sigurður Jóhannesson er faðir hennar Sunnu sem er með AHC taugasjúkdóm. Sigurður hefur komið áður til okkar og sagt bæði frá þeirra lífi, AHC og einnig Góðvild en hann er í stjórn Góðvildar Styrktarsjóðs. Hann er aktivisti og eigandi búðarinnar Mobility sem selur og leigir ýmis hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og þá sem þurfa tímabundið. Það er mjög fjölbreytt úrval af bæði smærri og stærri hjálpartæki fyrir allan aldur. Mobility er í Urriðarholti sem og eru þau styrktar aðilar hlaðvarpsins.  Bergur Þorri Benjamínsson er varaformaður stjórnar Sjálfsbjargar á Höfuðborgarsvæðinu og baráttumaður fyrir bættu aðgengi. Bergur hefur komið að mörgum verkefnum sem tengjast þessum málaflokki.  Hlutverk Sjálfsbjargar er að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðs fólks á Íslandi og eftir atvikum annarra fatlaðra og gæta réttinda og hagsmuna þess. Sérstaklega skal unnið að því að tryggja hreyfihömluðum félagsmönnum sem öðrum aðgengi að mannvirkjum, umhverfi, menntun, atvinnu og upplýsingum. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    1hr 11min
  5. 21 Apr

    80. Barnaheill - Ungheill ungmennaráð

    Ungheill er rödd unga fólksins, ungmennaráð Barnaheilla eða Save the children á Íslandi. Við fengum til okkar þær Miu Ðuric og Karitas Leu sem eru báðar í Ungheill til að segja okkur frá starfinu. Þær eru að vinna virkilega flott starf ásamt hinum í ráðinu. Við í samfélaginu þurfum að styðja við og efla ungmennaráð og hlusta á þeirra raddir og vinna saman.  Að hlusta á þær segja frá starfinu og vita að við erum með svo öflugt ungt fólk að vinna að bættu samfélagi er ekki bara skemmtilegt heldur hvetjandi, áhrifaríkt og gefur mikla von. Við eigum svo flotta fulltrúa í ungmennaráðum á Íslandi.  Mia og Karitas eru báðar einlægar, skemmtilegar og öflugar konur sem eru fyrirmyndir fyrir aðra. Ungheill er vettvangur ungs fólks á aldrinum 13 – 25 ára til að  hafa áhrif á málefni barna og ungmenna – hér heima og á heimsvísu. Ungmennaráðinu er ætlað að berjast fyrir réttindum barna, í samræmi við stefnu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Stjórn Ungheilla samanstendur af 5 – 7 fulltrúum, sem funda að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Starfsárið fylgir skólaárinu og er frá september fram í maí.  Heimasíða: https://barnaheill.is/ungheill/Hver geta sótt um? Ungt fólk á aldrinum 13–25 ára – alls staðar af landinu. Fólk af öllum uppruna, með fjölbreytta reynslu og bakgrunn – rödd allra skiptir máli!Til að vera með í stjórn Ungheilla og hafa áhrif – skráðu þig á ungheill@barnaheill.is eða sendu okkur skilaboð á Instagram @barnaheill.Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir. Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim. sjonarholl.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    1hr 3min
  6. 27 Mar

    79. Reykjadalur - Gló stuðningsfélag

    Andrea Rói forstöðumaður Reykjadals og Hildur aðstoðar forstöðumaður komu til okkar og sögðu okkar allt frá starfinu í Reykjadal. Það heyrist strax hvað þær hafa báðar ástríðu fyrir starfinu sínu og það sem maður heyrir frá þeim sem kynnast Reykjadal er að staðurinn snertir stað í hjartanu hjá flestum. -- glofelag.is Hlutverk Reykjadals er að skapa vettvang þar sem fötluð börn og ungmenni: ​fá raunveruleg tækifæri til þátttöku í tómstundum og til að tilheyra vinasamfélagi.​eiga val um að fara í sumarbúðir og upplifa jákvætt og uppbyggjandi sumarfrí með jafningjum.​fá stuðning frá öflugu og hugmyndaríku starfsfólki sem leggur metnað sinn í að gera hverja dvöl einstaka og skapa aðstæður þar sem allir geta tekið þátt í samveru og leik á eigin forsendum.Gló stuðningsfélag hefur haldið úti starfsemi í Reykjadal í Mosfellsdal frá árinu 1963 og skapað þar vettvang fyrir tómstundir, vináttu og öruggt samfélag fyrir fötluð börn og ungmenni. Gló er almannaheillafélag sem vinnur að aukinni samfélagsþátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Félagið miðlar þekkingu, veitir snemmtæka íhlutun og endurhæfingu og býður uppá sumarbúðir og ýmis tómstundatækifæri. -Í þætti 25 komu þær Jóna Guðný sjúkraþjálfari og Sigga iðjuþjálfi og sögðu okkur frá Gló Æfingastöð. -Í þætti 51 kom hún Guðbjörg Eggertsdóttir sjúkraþjálfi til okkar og sagði okkur frá starfi sínu hjá Gló Æfingastöð og hvernig hún hefur notað hesta í sjúkraþjálfun. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir. Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim. sjonarholl.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    59 min
  7. 17 Mar

    78. Eva Hrund - Fæddist á viku 27

    Við fengum hana Evu Hrund til okkar sem fæddist sjálf fyrirburi og var á vökudeildinni. Eva fæddist um viku 27, var í hitakassa í um 5 mánuði og þurfti að fara í hjartaaðgerð fljótlega eftir fæðingu. Eva sagði okkur frá sinni sögu og hvað er búið að breytast í málum fyrirbura frá því að hún fæddist. Eva er með bæði heyrna og sjónskerðingu og það er vitað núna í dag að sjónskerðingin er vegna þess að hún fékk of mikið súrefni eftir fæðingu. Það var ekki eins mikil þekking á þessum árum og er nú í dag einnig hafa ákveðin tæki tekið miklum framþróunum.  Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir. Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim. sjonarholl.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Smá um sögu Childs Farm: Í breskri sveit árið 2010 var móðir að nafni Joanna Jensen, hún átti tvær dætur Mimi og Bellu, en þær áttu í erfiðleikum með viðkvæma húð og exem. Joanna, eins og svo margir foreldrar, var staðráðin í að finna lausn sem myndi hjálpa þeim að líða vel og vera hamingjusöm í eigin skinni. Þegar Joanna leitaði að mildum, náttúrulegum og áhrifaríkum húðvörum fyrir stelpurnar sínar uppgötvaði hún gat á markaðnum fyrir hágæða en samt hagkvæmar vörur sem voru sérstaklega hannaðar fyrir húð barna. Knúin áfram af ást til dætra sinna og samúð með foreldrum sem glíma við svipaðar erfiðleika, hóf Joanna það verkefni að þróa sínar eigin vörur og að endingu að stofna Childs Farm, vörumerki sem myndi breyta lífi milljóna barna og fjölskyldna þeirra að eilífu. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    53 min
  8. 26 Feb

    77. Steinunn Helga Sigurðardóttir - 5 barna móðir sem eignaðist tvíbura á viku 28

    Við fengum til okkar hana Steinunni Helgu Sigurðardóttir sem segir okkur frá reynslu sinni sem fimm barna einstæð móðir og sem móðir tvíbura stelpna sem fæddust langt fyrir tímann eða á viku 28. Þær þurftu að vera á vökudeildinni í töluverðan tíma en þær eru báðar með Cerebral palsy (CP) og segir Steinunn okkur líka frá hvernig það hefur haft áhrif á líf þeirra. Börnin hennar eru í dag 9,7,4 og 2 ára. Steinunn er sjálf hjúkrunarfræðingur að mennt með viðbótargráðu í krabbameinshjúkrun og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og hefur starfað á Landspítalanum. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir. Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim. sjonarholl.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Smá um sögu Childs Farm: Í breskri sveit árið 2010 var móðir að nafni Joanna Jensen, hún átti tvær dætur Mimi og Bellu, en þær áttu í erfiðleikum með viðkvæma húð og exem. Joanna, eins og svo margir foreldrar, var staðráðin í að finna lausn sem myndi hjálpa þeim að líða vel og vera hamingjusöm í eigin skinni. Þegar Joanna leitaði að mildum, náttúrulegum og áhrifaríkum húðvörum fyrir stelpurnar sínar uppgötvaði hún gat á markaðnum fyrir hágæða en samt hagkvæmar vörur sem voru sérstaklega hannaðar fyrir húð barna. Knúin áfram af ást til dætra sinna og samúð með foreldrum sem glíma við svipaðar erfiðleika, hóf Joanna það verkefni að þróa sínar eigin vörur og að endingu að stofna Childs Farm, vörumerki sem myndi breyta lífi milljóna barna og fjölskyldna þeirra að eilífu. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

    1hr 29min

Ratings & Reviews

5
out of 5
3 Ratings

About

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

You Might Also Like