Hið yfirnáttúrulega

Ghost Network®

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

  1. 2 days ago

    126. Draugagangur og næmnin er að aukast.

    Hvað ætli sé í gangi hjá Selmu núna? Það hafa verið skítnir hlutir að gerast hjá henni sem er ekki hægt að útskýra. Ætli hún sé að opnast? Þegar næmnin eykst og fólk fer að heyra hluti sem eiga sér ekki sýnilegar útskýringar og breytist skynjunin gjarnan í svokallaða miðilsheyrn, sem getur birst með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða ytri heyrn, þar sem hljóðin virðast koma beint úr líkamlega umhverfinu, eins og fótatak á hæðinni fyrir ofan, bank í veggi, hvísl í tómu herbergi eða hljóð líkt og hlutir séu færðir til. Hins vegar getur hún birst sem innri heyrn, þar sem raddirnar hljóma inni í höfðinu en koma manni samt algjörlega á óvart. Þetta birtist oft sem skýr orð, eigið nafn kallað í hálfsvefni, eða heilu setningarnar sem koma eins og utanaðkomandi hugsanir með öðrum raddblæ en manns eigin innri rödd. Þessar sveiflur eru taldar eðlilegur hluti af því að vera næmur. Hægt er að þjálfa þessa skynjun og er hluti af þjálfuninni er að byggja upp traust á eigin skynjun. Sniðugt er að halda dagbók og skrifa niður allt sem þú heyrir eða skynjar, jafnvel þótt það sem þú heyrir eða skynjar virðist ekki meika sense. Með tímanum fer fólk að sjá mynstur, og þegar upplýsingar sem heyrðust reynast síðar eiga við rök að styðjast, styrkist hæfileikinn. Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  2. 28 Sept

    122. Chis Bledsoe - brottnuminn af geimverum

    Chris Bledsoe er einn þekktasti og umdeildasti maðurinn í heimi UAP (fljúgandi furðuhluta) og geimverurannsókna, en líf hans breyttist til frambúðar árið 2007 eftir meint brottnám við Cape Fear ána í Norður-Karólínu. Hann hvarf sporlaust í fjórar klukkustundir, og lýsti síðar fundi sínum við lýsandi kúlur, smáar verur með rauð augu og guðdómlega kvenveru sem hann kallar The Lady. Ólíkt dæmigerðum geimverusögum er upplifun hans mjög andleg; hann heldur því fram að verurnar hafi læknað hann af alvarlegum Crohn's sjúkdómi og fært honum boðskap um kærleika og andlega vakningu mannkyns. Sagan hans Chris er alveg mögnuð og hljómar pínu ótrúlega, en enn þann daginn í dag er hann að deila myndböndum af ufo ljósum eða plasma orbs sem hann getur framkallað með huganum einum. Hann framkallar þessi ljós nánast daglega með fjölda vitna sér við hlið. Hægt er að sjá þessi myndbönd á instagraminu hans. Í dag er Bledsoe afar eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi og hefur gefið út ævisöguna UFO of God. Hann ver tíma sínum í að miðla reynslu sinni, en frásögn hans hefur vakið mikinn áhuga hjá vísindamönnum NASA, leyniþjónustustofnunum og stjórnmálamönnum sem rannsaka tengsl meðvitundar og óútskýrðra fyrirbæra. Hann heldur því jafnframt fram að hann upplifi enn reglubundnar heimsóknir og búi yfir hæfileika til að lækna aðra. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  3. 25 Sept

    121. Heimsljós, heilun og andlegt trúnó.

    Við viljum byrja á að segja TAKK. TAKK allir sem komu og hittu okkur á Heimsljósi 19-20 september, það var ómetanlegt og svo gaman að hitta ykkur og spjalla. Takk fyrir stuðningin, peppið og hrósið, við erum svo þakklátar fyrir ykkur og yfirnáttúrulega samfélagið sem við erum að mynda hérna sem fer ört stækkandi. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að deila hlaðvarpinu með vinum og vandamönnum og takk fyrir ykkur, við erum bara mjög þakklátar eftir dásamlega Heimsljós helgi. Í þessum þætti förum við yfir Heimsljós helgina og förum á andlegt trúnó. Við getum talað endalaust um andleg málefni, okkar upplifanir og það sem við erum að læra alla daga inná okkar næmni og þennan ósýnilega heim sem er svo töfrandi og skemmtilegur! Maður er sko aldrei búinn að læra og það er það sem er svo skemmtilegt við lífið. Við erum fullar af þakklæti eftir að hafa kynnst helling af dásamlegum andlegum lífverum sem hafa gefið okkur fróðleik, gleði og visku og það er svo gaman að hitta aðra og heyra hvernig þeir skynja og hvernig þeirra næmni er. Við ræðum um hvernig við upplifðum að transheila tvær saman á eina manneskju og það var vægast sagt magnað og ótrúlega gaman! Við erum bara rétt að byrja og finnum að krafturinn er að koma með haustinu. Okkur hlakkar til að hitta ykkur aftur og skipulegga skemmtilegan viðburð þannig við getum sem flest hisst, spjallað og nornast saman. Við finnum að það er mikill áhugi fyrir því, enda er bara ekkert skemmtilegra en að vera umkringdur fólki sem er með sömu áhugamál og maður getur verið bara nákvæmlega maður sjálfur og rætt þessa hluti án þess að vera dæmdur stórfurðulegur og mæta bara skilning og áhuga í staðinn! Við viljum minna á að ef þið viljið segja okkur sögur, deila reynslu, hafið spurningar eða ábendingar þá má alltaf hafa samband og senda okkur póst: hidyfirnatturulega@gmail.com Við elskum að heyra frá ykkur! Hafið það gott og takk fyrir ÞIG. Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar: www.patreon.com/hidyfirnatturulega Mentioned in this episode: d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift Galdrabox Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur Komdu í áskrift

  4. 14 Sept

    119. Galdrar - nornir - álög

    Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis. Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum. Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn. Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk. Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili. Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Ratings & Reviews

5
out of 5
10 Ratings

About

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

You Might Also Like